Blogg

Fréttir

24.8.2010

Sónarskoðað frá Hrafnari í dag




Sónarskoðað verður frá Hrafnari í dag að Hömrum í Grímsnesi. Að því loknu verður Hrafnar tekinn heim að Hamarsey. Hryssueigendur eru beðnir um að sækja sínar hryssur, en hringt verður í alla að lokinni sónarskoðun.

Skrifað 24.8.2010 kl. 9:54 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.7.2010

Góð fyljun hjá Hrafnari




Hrafnar hefur staðið sig vel síðustu fimm vikurnar sem hann hefur verið í hryssum að Hömrum. Páll dýralæknir frá Stuðlum kom og sónarskoðaði 12 hryssur þann 20. júlí síðastliðinn. Hægt var að staðfesta fyl í 9 hryssum og voru þær teknar frá, einnig var mögulegt að fyl væri í þeirri tíundu. Hrafnar verður áfram í hryssum að Hömrum fram eftir hausti og standa þá vonir til að hann verði búinn að fylja samtals yfir 20 hryssur í sumar að húsmálinu meðtöldu.

Miklar drottningar hafa komist í kynni við kappann í sumar og árgangurinn sem kemur í brautina sumarið 2015 verður án efa spennandi. Af hryssunum sem hafa verið hjá honum í sumar má nefna:

Selma frá Sauðárkróki 1. verðl
Hnáta frá Hábæ 1. verðl
Snælda frá Bjarnanesi 1. verðl
Filma frá Árbæ 1. verðl
Birta frá Skarði 1. verðl
Stilla frá Ingólfshvoli 1.verðl
Keila frá Bjarnastöðum 1. verðl
Elding frá Strönd 1. verðl
Bríet frá Skeiðháholti 1. verðl
Aða frá Brautarholti 1. verðl
Sunna-Rós frá Úlfljótsvatni 1. verðl
Flaga frá Hafsteinsstöðum 1. verðl





Skrifað 23.7.2010 kl. 10:08 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.7.2010

100% fyljun á húsmáli




Hrafnar stóð sig vel á húsmálinu hjá okkur í Hafnarfirði og fyljaði allar hryssurnar sem hann hafði á húsi. Þær voru ekki margar, fjórar talsins, þar af tvær 1. verðlauna klárhryssur...en feikinóg fyrir frumraun 2ja vetra fola. Þær hafa nú allar verið sónarskoðaðar fylfullar eftir kappann.

Stefnt er að því að sónarskoða á Hömrum þann 20. júlí þar sem Hrafnar er í hólfi með 16 hryssum.

Skrifað 12.7.2010 kl. 22:41 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.7.2010

Hrafnar hefur það gott á Hömrum




Hrafnar hefur það gott að Hömrum í Grímsnesi þar sem hann eyðir sumrinu með sínum hryssuhópi. Hann er rólegur í stóðinu, heldur hópnum sínum saman en er ekkert að stressa sig á hlutunum þó. Hann hefur heldur fitnað í sumar, var frekar grannur þegar honum var sleppt út í vor.

Við bættum við hryssu undir hann um daginn, 1. verðlauna hryssunni Selmu frá Sauðárkróki. Selma er bleikálótt og sést hér ganga á undan Hrafnari, á eftir koma svo rauðskjótt og rauð hryssa með folöldum. Selma kastaði bleikstjörnóttri hryssu undan Hákoni Álfssyni, okkur fannst hún svo flott að það lá beint við að fara með hana í litla bróður.

Skrifað 10.7.2010 kl. 11:15 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.6.2010

Hrafnar í hólf á morgun




Hrafnar fer í hólfið að Hömrum á morgun mánudaginn 14. júní. Til hans eru komnar um 10 hryssur í frábært hólf hjá þeim Auði og Sigga á Hömrum. Það er búið að vera gaman að hafa Hrafnar á húsi síðustu vikurnar, hann hefur tamist mikið enda ótrúlega skynsamur og yfirvegaður foli.

Skrifað 13.6.2010 kl. 16:57 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.6.2010

Fyrsta fylið staðfest




Fyrsta fylið undan Hrafnari var staðfest í dag, sú fylfulla er Hnáta frá Hábæ. Hnáta er hátt dæmd 1. verðlauna klárhryssa í eigu vina okkar, Davíðs og Rutar í Eylandi (www.eyland.is). Hún er með 8.41 fyrir hæfileika, þar á meðal 9 tölt, stökk, vilja/geðslag, fegurð í reið og hægt stökk. Og 9.5 fyrir brokk.



Fylið.

Skrifað 9.6.2010 kl. 17:55 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.6.2010

Húsmálið að klárast




Þá fer húsmálið senn að klárast. Miklar drottningar hafa vitjað Hrafnars í vor, má þar nefna Hnátu frá Hábæ og Bríeti frá Skeiðháholti, 1. verðlauna klárhryssur, skreyttar níum á alla kanta, auk 1. verðlauna Náttfaradótturinnar Birtu frá Skarði, verðmætt að eiga slíka hryssu í ræktun.

Í hólfinu að Hömrum koma svo til hans ekki síðri hryssur, þar á meðal dívurnar Filma frá Árbæ, Kórína frá Tjarnarlandi, Elja frá Ingólfshvoli og Sunna-Rós frá Úlfljótsvatni.

Skrifað 7.6.2010 kl. 19:48 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.6.2010

Hryssur í hólfið 12. júní




Óskað er eftir að þeir sem eiga pláss í hólfið hjá Hrafnari komi með hryssur á Hamra í Grímsnesi laugardaginn12. júní nk. á milli kl. 15:00 og 18:00. Ef einhver getur ómögulega komið á þessum tíma má hafa samband við Sigurð á Hömrum í síma 849-4972 og semja um aðra tímasetningu.

Við afhendingu hryssnanna þarf að láta Sigurð vita um eftirfarandi:

Eigandi/umráðamaður hryssu, 
    Símanúmer,
Uppl. um hryssu 
    Nafn og uppruni
    Fæðingarnúmer
    Einstaklingsmerki
Uppl. um folald
    Nafn og uppruni
    Litur
    Faðir
    Einstaklingsmerki

Góð regla er að búið sé að einstaklingsmerkja folöld og gefa hryssunum inn ormalyf auk þess að klippa hófa ef þess er þörf. Hryssur sem koma í girðingu hjá hestinum verða alfarið á ábyrgð umráðamanna þeirra á meðan þær eru í girðingunni. Daglegt eftirlit verður með girðingunni en umráðamönnum hryssu er ekki heimilt að fara um girðinguna á tímabilinu án samráðs við Sigurð.

Stefnt er að því að sónarskoða að um 6 viknum liðnum eða um mánaðamót júlí/ágúst.


Nánari upplýsingar hjá Hannesi í síma 864-1315 eða með tölvupósti á hrafnar@hrafnar.is

Skrifað 4.6.2010 kl. 21:51 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.5.2010

Sumarið er komið




Hrafnar er að komast í dúndurstand. Fær mikið að éta í formi heyja, fóðurbætis og grængresis. Svo á hann stefnumót nánast alla daga með einhverri hryssunni sem er hjá honum.

Hryssurnar sem eiga pantað hjá honum í sumar mega koma í hólfið að Hömrum laugardaginn 12. júní, kappinn kemur svo sjálfur 13. eða 14. júní.


Skrifað 27.5.2010 kl. 23:08 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.5.2010

Byrjar á 1. verðlauna hryssu




Fyrsta hryssan er komin til Hrafnars. Hann verður í húsnotkun hjá okkur í Hafnarfirði fram í júní 2010 en fer síðan í hólf að Hömrum í Grímsnesi og verður þar í sumar.

Hrafnar sést hér hnusa af Bríeti frá Skeiðháholti, 1. verðlauna hryssu, sem við höfum verið að halda undir kappann síðustu daga.



Skrifað 17.5.2010 kl. 23:05 af Hannesi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.5.2010

Heimasíða Hrafnars í loftið




Þá hefur heimasíða Hrafnars litið dagsins ljós. Hér má sjá mynd af folanum, nýrökuðum í lok apríl 2010. Hann hafði verið á útigangi í tittahólfi í vetur og var mjög skellóttur af lús. Sumarhárin voru ekkert byrjuð að koma þannig að það var bara drifið í að raka hann.



Skrifað 4.5.2010 kl. 23:04 af Hannesi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 45
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 132
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 10542
Samtals gestir: 2805
Tölur uppfærðar: 2.9.2010 21:19:05